歌词
Hugrekkið glampaði í augum hans
og hendurnar hættu að skjálfa.
Hátt settu marki skyldi hann ná
hæðina skyldi hann loks sigra.
Leiðina þekkti sem lófa sinn
og lengdina vissi upp á hár.
Ferðin auðveld var ásýndar
en erfiðust hugsunin sjálf.
Á fjallinu miðju hann hjartað fann
fastar slá en fyrr.
Í eitt augnablik hann aftur leit
þá angistin hetjuna greip.
Vindbarinn tróndi toppnum á
tárvotur brosti breitt.
Í dag hafði hann sigrað sjálfan sig
sína þyngstu þraut hafði leyst.
专辑信息
1.Ringulreið
2.Í sjávarháska
3.Dagur þrjú
4.Í blíðu stríði
5.Hún
6.Ferðalangur
7.Allt gullið
8.Heiðskýr heimsendir
9.Hetjan á fjallinu
10.Ljósglæta