歌词
Myrkrið hljótt
song:Erna Hrönn Ólafsdóttir
Í stutta stund þú dvaldir hér
En tókst þó samt að fanga hjarta mitt
Í fyrstu gafst mér þitt
Við elskuðumst um sumarnótt
Og neistinn varð að báli alltof fljótt
Svo hvarfstu ofurhljótt
Sérhvert augnablik, hvert andartak
Ég reyni þér að gleyma
Mig skildir eftir eina
Myrkrið hljótt vefur um mig örmum sínum
Hljóðlátt sefar mína sál
Dag og nótt, veit ég þarf að reyna
Svo ég lifi á ný
Í huga mínum vonaði
Að framtíð biði björt, við yrðum eitt
En fékk þó ekki neitt
Hve sárt það er að hugsa um það
Að geta ekki spurt hvað út af bar
Því ég veit ég fæ ei svar
Og hvert augnablik, hvert andartak
Ég reyni þér að gleyma
Mig skildir eftir eina
Myrkrið hljótt vefur um mig örmum sínum
Hljóðlátt sefar mína sál
Dag og nótt, veit ég þarf að reyna
Svo ég lifi á ný
Kemst ég yfir þig?
Mín ást er heit
Mun ég vera nógu sterk?
Finnst ég þurfa kraftaverk
Myrkrið hljótt vefur um mig örmum sínum
Hljóðlátt sefar mína sál
Dag og nótt, veit ég þarf að reyna
Svo ég lifi á ný
Svo ég lifi á ný
专辑信息
1.Lítil skref
2.Fjaðrir
3.Í síðasta skipti
4.Augnablik
5.Aldrei of seint
6.Þú leitar líka að mér
7.Fyrir alla
8.Myrkrið hljótt
9.Í kvöld
10.Brotið gler
11.Piltur og stúlka
12.Milljón augnablik
13.Lítil skref (án söngs)
14.Aldrei of seint (án söngs)
15.Augnablik (án söngs)
16.Brotið gler (án söngs)
17.Fjaðrir (án söngs)
18.Fyrir alla (án söngs)
19.Í kvöld (án söngs)
20.Í síðasta skipti (án söngs)
21.Milljón augnablik (án söngs)
22.Piltur og stúlka (án söngs)
23.Þú leitar líka að mér (án söngs)
24.Myrkrið hljótt (án söngs)