歌词
Þegar ég var lítil var ég voða feimin oft
og væri einhver ókunnugur skaust ég upp á loft.
En ef að ég var úti, þegar gest að garði bar,
ég geystist upp á hlöðuburst og settist niður þar.
Komdu niður, kvað hún amma.
Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður, sungu öll í kór.
Svo stækkaði ég meira og þá varð ég voða kát,
og veslings pabba og mömmu oft ég setti hreint í mát.
Égskoppaði og hentist yfir hvað sem fyrir var,
ég hoppaði upp á skólaþak og settist niður þar.
Komdu niður, kvað hún amma.
Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður, sungu öll í kór.
En seinna verð ég stærri og það verður gaman þá,
og víst er það að margt þið fáið þá til mín að sjá.
Þá ætla ég nú upp í tunglið strax að fá mér far,
og finna karlinn skrýtna sem að á víst heima þar.
Komdu niður, kvað hún amma.
Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður, sungu öll í kór.
Komdu niður, kvað hún amma.
Komdu niður, sögðu pabbi og mamma.
Komdu niður, komdu niður,
komdu niður, sungu öll í kór.
专辑信息
1.Lóan er komin
2.Vorvindar glaðir
3.Komdu niður
4.Sumar í sveitinni okkar
5.Ég ætla að mála allan heiminn
6.Ég á lítinn skrítinn skugga