歌曲 / 歌词

Valdi skafari

Listen on Apple Music

歌词

Valdi er í heflinum
Úlpunni og treflinum
Ekki beint í skýjunum
Yfir takinu í bakinu
Krossbölvar í takt
Við gibb-bræðurna
Í gufuradíóinu
Hann hlustar grannt á ellington
Og ódýrt hafrakex í kron
Svo kemur egill ólafsson
Með sæmund gamla klemenzson
Slekkur strax á bach
Því valda leiðist klassík
Nema mendelsohn
Einn er flugmaður annar kafari
Þriðji læknir fjórði grafari
Fimmti þráir frið sá sjötti havarí
En þorvaldur er skafari
Tölvuúrið stingur við
Tíminn girðir niðrum sig
Ósköp hægt og sígandi
Einkum fyrir hádegi
Hann kemur loksins heim
Gleypir í sig fars
Valdi kveikti sér á kassanum
Og líka gamla pípustertinum
Sofnaði einsog afi sinn í sófanum
Og dreymdi hann væri í heflinum