歌曲 / 歌词

Kossar án vara

Listen on Apple Music

歌词

Það snjóar hérna úti og garðurinn hann gránar.
Garðastrætishúsin verða hlýleg að sjá
Og kertaljóssins skuggar skrítnum myndum varpa
á veggina í stofunni sem ég stari á.
Og myndirnar þær læðast, lúmskar inn í hugann
Leggjast bak við augun og hvísla því að mér
Að ástin sé augnablik sem brenni mannsins hjarta
í brjósti mínu er eldurinn enn að leika sér.
Og þau svífa í kvöld snjókornin
Sem kossar án vara.
Og við sem vorum ástfangin
Aldrei náðum saman,
það lá alltaf í loftinu
Að ég mundi fara.
Það snjóar hérna úti og enginn er á ferli
Allt er hjúpað rökkri og kertin eru dauð.
Senn fer hann að birta og bílar vakna kaldir
En borgin sefur ennþá og gatan mín er auð.