歌曲 / 歌词

Harmsöngur Tarzans

Listen on Apple Music

歌词

Ég sem hef alla ævi rólað mér í trjánum
Ég sem hef höggvið margan krókódíl í spað
Ég sem hef reddað ótal manns úr tígriskjafti
Ég sem tala apamál og ensku - jafnvel
Það á að setja mig á elliheimili
Það á að henda mér í ruslatunnu
Sjálfum
Tarzan, konungi apanna
(Apanna)
Tarzan, konungi apanna
(Apanna)
Ég þyki ekki lengur gjaldgengur!
Æjæja!
Ég sem hef alla ævi húkt í myrkum skógi
Aldrei hef ég leyft mér að dotta á vaktinni
Það reynir á taugarnar að redda ótal hlutum
Sem úrskeiðis fara í dimmum frumskógi
Ææ!
Nú á að setja mig á elliheimili
Það á að henda mér í ruslatunnu
Sjálfum
Tarzan konungi apanna
(Apanna)
Tarzan, konungi apanna
(Apanna)
Ég þyki ekki lengur gjaldgengur!
Fuss og svei!
(Tarzan konungur apanna)
(Apanna)
(Tarzan, konungur apanna)
(Apanna)
(Tarzan konungur apanna)
(Apanna)
Ég þyki ekki lengur gjaldgengur!
Ó Jane!