歌曲 / 歌词

Með drekum

Listen on Apple Music

歌词

Hátt á vængjum vættar
Veru fylgja herir.
Yfir horfir hafið
Hendast nærri fjendur.
Skríða yfir Skrúðinn
Skrælingjar í brælu.
Ljótir á oss leita
Landið er í vanda.
Barðist fólk á fjöru
Fór á höfðann Þórunn.
Bogi gat ei geigað
Grenja undan frenjur.
Gjalda ógn með eldi
Yfir allt sem lifir.
Hetjur böls og haturs
Hrekjast undan dreka.
Um fór, ógnandi stór.
Álengdar stóðu þá Bragi og Þór.
Hart skal mæta hörðu.
Hart skal mæta hörðu.
Blés þá brandinum sá.
Brunnu þar allir við Sandvíkurá.
Jöfnum þá við jörðu.
Jöfnum þá við jörðu.
Eldraun Auðna þessa þreytti
Þórunn með sitt sverð og skjöld.
Nóttin til hins betra breytti
Blóðgaði hún drýslafjöld.
Misstum bæði vár og vini
Var það blóðrauð sumarnótt.
Rétt í tungls- og röðulsskini
Ráðast kvæði drótt.
Biksvart blóð
Brennheit glóð.
Stelpan stóð
Stjörf og hljóð.
Þeir komu á skipum, þeir komu úr lofti
í kraumandi veðri og sjó.
Þúsundum saman með þrumandi öskri
Og þefja sem vit okkar sló.
Vopnlausir flestallir, vargar og skepnur
Sem vilja með kjafti og klóm
Rífa þig sundur og ráðast á næsta
Með rauðhlaupin augun og tóm.
Blésu þeir eldi á bátana okkar
Við börðumst á móti með heift.
Verk þeirra mann sem ganga á glapstigum
Gátum við alls ekki leyft.
Dýrkeyptur sigur en drekar og menn sýndu
Duginn sem skilaði þeim
Réttinum að geta ráfað að heiman
Og ratað á nýjan leik heim.