歌曲 / 歌词

Sumargestur

Listen on Apple Music

歌词

Fuglinn minn úr fjarska ber
Fögnuð vorsins handa mér.
Yfir höfin ægibreið,
ævinlega – flýgur rétta leið.
Tyllir sér á græna grein,
Gott að hvíla lúin bein.
Ómar söngur hjartahlýr.
Hlusta ég á – lífsins ævintýr.
Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleðiboðskapinn;
þessa ljúfu tæru tóna, tóna
Þegar haustar aftur að,
Af einlægni ég bið um það,
Að mega syngja sönginn þinn,
Sumargestur, – litli fuglinn minn.
Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleðiboðskapinn;
þessa ljúfu tæru tóna, tóna.
Þú átt athvarf innst í sál,
ó, að ég kynni fuglamál,
Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.