歌曲 / 歌词

Njáll og Bergþóra

Listen on Apple Music

歌词

Útí norræna bíður bergþóra
Eftir eiginmanni sínum og hundi
Þeir koma flaumósa fá sér tebolla
Sjænaðir úr gufu og sundi
Svo fara þau á samnorræna
Góna og mæna ...intressant
Sýna sig og skoða aðra
Masa og þvaðra
Þau eru róttækt meinningarsnobb
Með sóma og sanni
Þau eru róttækt meinningarsnobb
Þau fara í leikhúsið kunna leikritið
Klædd a la adam og eva
Skreppa í kjallarann fá sér manhattan
Ræða náungann stýfa hann úr hnefa
Þau ætla sér að eignast íbúð
Undir skarsúð ...intressant
Kafka proust og herman hesse
Sum fui esse
Þau eru róttækt meinningarsnobb
Með sóma og sanni
Þau eru róttækt meinningarsnobb
Njáll og bergþóra elska að motmæla
Kaupa newsweek times og konfekt í laumi
Hanga á fundunum löngum stundunum
Kunna nallann jafnt í vöku og draumi
En byltingin er hlutavelta
Gæti skaðað fjárhaginn
Sprengjan hún er löngu sprungin
Messan sungin
Þau eru róttækt meinningarsnobb
Með sóma og sanni
Þau eru róttækt meinningarsnobb